LOKSINS LOKSINS LOKSINS geta aðdáendur Maya Road tekið gleði sína á ný því nú fást vörurnar frá þeim aftur á Íslandi! Byrjum smátt en aukum við úrvalið fljótlega.
Sláið "maya" inn í leitargluggann og þá sjáið þið hvað er í boði.
Vikutilboð 29. júní til 6. júlí er 5-15% afsláttur af 6x6 pappírsblokkum.
Þessi stærð af pappír er mjög hentug í kortagerðina og mini albúmin. Sennilega landsins mesta úrval af þessum blokkum er hjá netversluninni Skrapp og gaman.is, einu sérhæfðu netverslun landsins með allt í skrappbooking og kortagerð.
Gerum okkur glaðan dag í tilefni þjóðhátíðardagsins okkar 17. júní og bjóðum okkar góðu viðskiptavinum 20% afslátt af Dear Lizzy pappírum, sem sagt venjulegum pappír, glimmerpappír og "tau"pappír.
Sannkallaður sumarpappír og hentar fullkomlega fyrir allar 17. júní sólarmyndirnar.
Vikutilboð þessa vikuna (15-21. júní) er 10% afsláttur af Martha Stewart munsturgöturum. Gæðavara sem endist og endist og setur skemmtilegan svip á allt pappírsföndur.
Minnum á að það er opið á lagernum okkar alla þriðjudaga kl. 19.30-21.30.
Gaman gaman það er kominnn þriðjudagur aftur og það þýðir bara eitt: Það er opið í fallegasta bílskúr landsins og þó víðar væri leitað.
Vikutilboð þessarar viku er 10% afsláttur af 12x12 þriggja hringja albúmum frá Basic Grey og We R Memory Keepers (tilboðið gildir fram á næsta þriðjudag, þá tekur eitthvað annað skemmtilegt tilboð við).
Minnum á opnunartímann okkar, alla þriðjudaga kl. 19.30-21.30
Glæsilegt úrval af öllu því sem er mest spennandi í skrappheiminum í dag. Fáránlega góð tilboð í Tilboðshorninu okkar og að sjálfsögðu er allt sem við bjóðum uppá sýnilegt á netversluninni, versluninni sem aldrei sefur.
Verið velkomin í skrappskúrinn þar sem fegurðin er ólýsanleg.
Það er alveg þess virði að kíkja á TILBOÐSHORNIÐ okkar. Þar er full af flottum vörum á góðum afslætti; pappír, brads, límmiðar, límmiðastafir og Spritz glimmersprey á 15-25% afslætti.
Eins og það væri nú ekki nóg að fylla allt af fegurstu pappírsblómum sem um getur þá fannst okkur tilvalið að auka á fegurðina með "smá" pappír og aukahlutum frá Basic Grey! Cappella brúðkaupslínan og Max & Whiskars krakka/dýralínan eru komnar í hús.
Það er bara gleði í skrappskúrnum og netverslunin sem aldrei sefur algjörlega að gera sig, verslum á náttbuxunum og njótum lífsins!
Kærleiksblómin spretta í Kópavoginum sem aldrei fyrr. Erum að setja inn pappírsblóm af mörgum gerðum og í öllum regnbogans litum. Mælum með að allir eigi a.m.k. eina gerð af Skrapp og gaman blómunum, þau eru svo góð fyrir sálina, fölna aldrei og hengja ekki haus og kalla fram allt það besta í föndurdósum til sjávar og sveita. Ást í poka sem ekki má loka.
Allt á fullu hjá Skrapp og gaman.is (en það eru svo sem engar fréttir!!) Vorum að taka upp sjóðheitar vörur frá Girls Paperie sem eru sköpunarverk Margie Romney-Aslett og slógu heldur betur í gegn á síðasta CHA. Þessar línur heita Paper Girl og On Holiday og eru í mjúkum Shabby Vintage stíl. Við erum í skýjunum yfir að geta boðið ykkur upp á þessar flottu vörur.
Nýkomin sending af blómum af ýmsum gerðum; gardeníur,magnólíur, liljur, kirsuberjablóm og rósir í öllum regnbogans litum. Allt handunnið sérstaklega fyrir Skrapp og gaman
Sumartilboð á Shimmerz, Blingz, Spritz og Pearlz glimmermálningu og glimmerúða. 20% afsláttur. Nú er sko tíminn til að bæta við litunum sem þig hefur alltaf langað í en ekki lagt í að kaupa!
Jæja þá er kominn þriðjudagur eina ferðina enn, ótrúlegt hvað vikan líður hratt, en það er svona þegar maður er umkringdur af fallegu skrappdóti. Endilega kíkið í skúrinn í kvöld, opið kl. 19.30-21.30 og allt morandi í nýju fíneríi t.d. Dear Lizzy línan frá American Crafts og smá af nýja Webster pappírnum. Basic Grey glóðvolgur með nýju Kioshi og Green at Heart línurnar. Fengum líka splunkunýja Thickers stafi og fleiri aukahluti. Brads og flottu Skrapp og gaman blómin auðvitað í miklu úrvali.