Thursday, January 28, 2010

Blómagreinagerð ~ Sandra

Sandra DT-skutla er alger snilli í blómagreinagerð og hér er flott kennslumyndand þar sem hún sýnir hvernig greinin er búin til.



Vörur úr Skrapp og gaman sem Sandra notar í greinina: Skrapp og gaman mini rósir og Martha Stewart Roas Leaf punch

Sunday, January 24, 2010

Rigning, rok og afsláttur! ;o)

Af því veðrið er svona leiðinlegt ætlum við hjá Skrapp og gaman að vera ofurskemmtileg og bjóða collection pakkana í nýju línunum frá Basic Grey, Origins og Sugar Rush, á 20% afslætti. Collection pakkning inniheldur heildarlínuna (18 pappírar), límmiðaörk með helling af flottum límmiðum sem bjóða upp á óteljandi möguleika og stóra örk af límmiðastöfum. Er ekki rigningin bara strax orðin bærilegri?

Friday, January 22, 2010

Ný DT-skutla!

Takið vel á móti Söndru nýrri DT-skutlu hjá Skrapp og gaman.is


Sandra er hæfileikaríkur skrappari, kortagerða-skutla og alger snilldar föndrari í flestu sem henni dettur í hug að föndra úr.

Við hlökkum til að vinna með henni og sjá hvað hún töfrar fram úr skrapp-stöffinu! ;o)
Endilega kíkið á bloggið hennar Söndru til að sjá hvað hún er að bralla.

Velkomin í hópinn
~ * ~
Anna Sigga, Þorbjörg og eigendur Skrapp og gaman.is

Skrapp-rok í verslun!

Þá er skollið á algjört skrapp-fárviðri nákvæmlega eins og spáin hljóðaði uppá! Inná lager Skrapp og gaman feyktust nýjustu línurnar frá Basic Grey; Origins og Sugar Rush með fjölda fylgihluta, mini blokkir í kortin og albúmin, límpúðar og svo hinir stormandi vinsælu kantmunsturgatarar frá Martha Stewart, Doily Lace og Zig Zag. Nú er sko sniðugt að þurfa ekki að fara út til að versla!

Monday, January 11, 2010

Pink Paislee Cupid línan og fleira

Vorum að fá sendingu af Cupid línunni frá Pink Paislee, yndislega rómantísk lína í anda Valentínusardagsins en hentar líka mjög vel t.d. í barnaalbúm. Mildir og fallegir litir sem passa vel við myndir af því sem okkur finnst dýrmætast í lífinu. Distress Stickles í glæru og hvítu passar líka svona glimrandi vel við Cupid! Kíkið við á síðunni og sjáið til hvort þið verðið ekki jafn ástfangin af þessari fegurð og við!

Wednesday, January 6, 2010

Súperflott tilboð

Súperflott tilboð á flottum vörum hjá Skrapp og gaman.is.

June Bug og Lemonade á 20% afslætti.
Eskimo Kisses á 10% afslætti.
Amber Road á 10% afslætti.
Allar My Littel Shoebox línurnar á 10% afslætti og svo er auðvitað tilboðshornið á sínum stað með skrappnammi á fínu verði. Nú er sko tíminn til að bæta við pappírslagerinn! ;o)