Wednesday, December 1, 2010
Monday, November 8, 2010
Sporðderkadagar
Sporðderkadagar hjá Skrapp og gaman.is þessa vikuna. Flottur afsláttur af munsturgöturum, pappírsskerum, hnífum, brads og My Mind's Eye pappír. Þriðjudagsopnun eins og venjulega. Netverslunin sem aldrei sefur er auðvitað alltaf opin :-) Tilboðin gilda t.o.m. 14. nóvember (ef eitthvað verður eftir þá!!!!!)
Monday, October 25, 2010
Póstlisti Skrapp og gaman.is
Skráið ykkur á póstlista Skrapp og gaman.is, þá berast ykkur fréttir af nýjum vörum, uppákomum og tilboðum og engin hætta á að missa af því allra heitasta í skrappheiminum.
Póstlisti Skrapp og gaman.is
Sunday, October 10, 2010
Núna þegar haustið skartar sínum fallegu litum og allir skrapparar sem vettlingi geta valdið eru búnir að smella óteljandi myndum af fjölskyldunni í litadýrðinni er tilvalið að skella sér á Pyrus, nýja haustlitapappírinn frá Basic Grey.
Fallegir aukahlutir einnig fáanlegir; brads, filtlímmiðar, tölur og fleira og fleira. Sláið inn Pyrus í leitargluggann og dýrðin kemur í ljós!
Skrappkveðjur :D
Thursday, September 23, 2010
Glimmer og flottheit!
Loksins er My Mind's Eye pappírinn og aukahlutirnir til á Íslandi og að sjálfsögðu er þetta allt að finna hjá Skrapp og gaman ásamt öðrum vörum fyrir scapbooking og kortagerð í hundraðatali. Munið að netverslunin sem aldrei sefur tekur vel á móti ykkur allan sólarhringinn.
Síður eftir þær Önnu Siggu og Þorbjörgu þar sem þær nota My Minds Eye pappír og aukahluti, Tattered Angels Glimmer mist og Tattered Angels Glimmer Glam.
Vekjum athygli á nýjum flokk í netversluninni sem aldrei sefur. Í flokknum "Nýtt og spennandi" eru allar nýjustu vörurnar okkar og þessi flokkur endurnýjast reglulega þar sem það streyma stöðugt inn heitustu skrappvörur sem finnast í þessu sólkerfi.
Njótið vel :)
Wednesday, September 8, 2010
Glimmer og fleira!!!
Vorum að taka upp fullt af glitrandi fallegum vörum frá Tattered Angels. Glimmer Glam er málning í frábærum litum með glimmeri fyrir allan aurinn og rúmlega það.
Glimmer Mist Chalkboard er glimmerúði sem er meira þekjandi en orginal Glimmer Mistið en með fallegum gljáa samt sem áður. Tveir nýir litir í orginal Glimmer Mist bættust við, Olive Vine og Raven.
Það er allt betra með vænum skammti af glimmer!
Thursday, September 2, 2010
Ammæli!!! :D
Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag, hún á afmæli hún Skrappoggaman.is, hún á afmæli í dag.
Hún er 1 árs í dag, hún er 1 árs í dag, hún er 1 árs hún Skrappoggaman.is, hún er 1 árs í dag og af því að það er svo gaman ætlar hún að bjóða upp á 10% afslátt af nýju Cappella og Max&Whiskers línunum allt frá brads upp í albúm! Það er svo gaman að eiga afmæli!!!!! Takk fyrir fyrsta árið af mörgum kæru vinir og velunnarar.
Subscribe to:
Posts (Atom)
















